www.dynamite.bloggar.is

www.dynamite.bloggar.is

27.08.2006 18:28:42 / Sonja

God dag..

Nei hææææ

Í dag er ég rosalega glöð i hjartanu..eins og flesta daga.. því núna er ég að vinna seinasta vinnudaginn minn í Load control uppí Flugstöð og svo á morgun fer ég til San fransisco.. með mínum heittelskaða.. ætlum að fara og vera í eina viku og hlaða batteríin fyrir skólann hjá mér sem byrjar 4.sep..get ekki beðið eftir þessu öllu saman.. bæði Friskó og atvinnufluginu....habba habba..hvur veit nema maður kikji aðeins i búðirnar og svona  en hef ekki meira að segja í bili...

Bið að heilsa..risa stórt hjarta knús í klessu til ykkar..

 

 



Kv Sonja

 



                                



 

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

24.08.2006 23:40:35 / Ásta

Læri læri tækifæri :)

Sælar pæjur,

ég sit hérna við eldhúsborðið heima og er búin að vera að læra í allt kvöld, Oddur situr við hliðina á mér og er enn að!  Greinilegt að skólinn er byrjaður á þessum bæ  ...ég er samt mjög glöð, var búin að hlakka svo til   ...núna á tíminn sko eftir að fljúga þangað til krílið mætir í heiminn :)

Meðgangan gengur bara eins og í sögu, við eigum reyndar viðbjóðslegt rúm sem er vont við bakið á mér og leyfir mér ekki að sofa á nóttunum ...en við erum búin að kaupa nýtt rúm núna sem við fáum sent á morgunn eða mánudaginn! Get sko ekki beðið eftir því, við keyptum líka eitthvað sem heitir "kelidýna" til að hafa yfir rúminu og hún er þvílíkt þægileg :)

Svo er ég byrjuð í meðgöngujóga sem er bara þægilegt og kósý stund, ég er tvisvar í viku í 1 1/2 klukkutíma í einu  ...þar erum við að læra að anda okkur í gegnum hríðarnar og eitthvað svoleiðis allskonar spennandi ;)  Manni líður stundum eins og algjörum kjána t.d. þegar við eigum e-ð að syngja og dansa en það er samt bara gaman  ...hentar mér mjög vel þar sem ég er svo mikill kjáni!  Ég mæli sko hiklaust með þessu, maður nær að slaka svo vel á :)

Um síðustu helgi var Sólseturshátíð í Garðinum, ég fór og kíkti dagskránna með múttu um daginn og svo um kvöldið var ég með Dóru vinkonu og við hittum alveg fullt af fólki sem ég hafði ekki séð lengi  ....það var æði :)

Það eru góðar líkur á að ég taki röltið niður Hafnargötuna á ljósanótt svona fyrir áhugasama  ...hehe...

Annars segi ég þetta bara gott í bili, góða nótt dúllurnar mínar :*

Love Ásta Björk







» 8 hafa sagt sína skoðun

21.08.2006 12:06:20 / Ásdís

Hæhæhæ ...

Hæhæ what up?? :haha:

2395025.png

Hvað segiði , var ekki gaman á menningarnótt?? Ég var algjör lúði og nennti ekki að fara, var bara gegt þreytt og þunn eftir afmælið hjá Mömmu ;) En ég vildi segja ykkur að ég var að setja inn myndir inná mína síðu www.asdisr.bloggar.is frá Þjóðhátíð og fyrir Sálina, ég gleymdi að taka myndir á Sálinni hehe , var aðeins of hífuð :haha: ...

 

 

Hvað segiði gellur?? á að hafa eitthvað geggjað djamm á Ljósanótt?? Ég held að við ættum að plana eitthvað djamm á Ljósanótt og svo þarna sleepover bara strax eftir helgina, því þá er komin pása á þessu djammi á manni allavega ekki hverja einustu helgi hehe ... :haha: Commentið um þetta ef þið viljið halda þetta ? :haha:

155719443.jpg

Hvað segiði um kannski Sumarbústaðaferð (Bara stelpur) aðra helgina í September eða eitthvað :haha:

  

Kveðja Ásdís Dynamite :haha:


» 17 hafa sagt sína skoðun

14.08.2006 12:10:39 / Anika

farmiðinn á 2000

ohh mig langar svo til mömmu.. það er núna að verið að auglýsa farmiðann á 2000 hjá express :() langar svooo en þar sem ég er að fara til NY CITY í september og svo BOSTON í oktober þá efa ég a'ð ég hafi nú efni á að fara til múttu minnar ;)
En ég get ekki beðið eftir þessum ferðum sem ég er að fara í. Held að Gréta sé alveg sammála mér í þessu hehehehhhh..

Svo er ég að fara í 12 vikna átak hjá perlunni og byrjar það á lau en ég er samt byrjuð bara sjálf ;)

Þetta var bara smá frá mér..hérna.. hef ekkert að gera minn litli er á leiksólanum og ég bara eirðarlaus á meðan hehehehhhh..snúllinn minn.

adios
ANIKA

» 13 hafa sagt sína skoðun

11.08.2006 12:43:34 / Ásdís

Sálarball í Stapa???

Hey everybody :haha:

Ætla ekki allir að fara á Sálarballíð í Stapa núna á Laugardaginn????

Það verður geggjað, ég hef ekki farið á Sálarball í eitt og hálft ár eða eitthvað :lol:

Kommentið og segið hvort þið ætlið eða ekki :haha:


» 11 hafa sagt sína skoðun

09.08.2006 09:57:54 / Ásta

Ég er orðin 22. ára :)

Ég átti frábæran afmælisdag í gær, Oddur kom heim frá Annapolis í fyrradag en fór beint á sólahringsvakt þannig að ég var ekkert búin að sjá það sem hann keypti  (fékk samt að knúsa hann smá áður en hann fór á vakt)  ...hann kom svo að ná í mig í vinnuna í gær, gaf mér blóm og svo þegar við komum heim þá sat ég bara í sófanum og hann tók uppúr töskunum til að sýna mér :)  Ég var bara eitt bros allan tíman, fullt fullt fullt af barnafötum og allskonar barnadóti  ...hann meira segja náði að finna baðið sem ég var búin að biðja um, ógó sætt sko :)  ...svo keypti hann helling í Classic pooh sem er auðvitað bara flott!!

Svo fékk ég líka fullt af bolum, peysu, buxur, nærföt og allskonar dót :)

En ég vildi bara deila þessu með ykkur, kominn tími á eitt blogg frá mér!

Love Ásta Björk sem er alveg í skýjunum... 

P.s. Afmæliskveðja til Valda frænda og Adda "frænda" sem áttu báðir afmæli 7. ágúst :)


» 13 hafa sagt sína skoðun

31.07.2006 16:31:29 / Magga

......................... smá frá mér.............

sælar stúlkur :)

það er nú ekkert voðalega mikið að frétta af mér. er bara búin að vera að vinna og sofa. skellti mér út að slá blettinn í gær og reyta arfa, við skötuhjú ákváðum að vera pínu dugleg

 

eftir að við vorum búin að slá kíktum við í bæinn á útitónleika með Sigurrós ;) Þeir voru klikkað góðir. Geggjað veður svo að maður sat bara á grasinu og hlustaði á þessa snillinga.

Svo var ég að fá mér litla sæta kisu. Hún heitir Snoppa og er alveg æðisleg. Hún er 11 vikna og þvílíkur prakkari. Stekkur upp lappirnar á manni þegar maður er að setja á snúrurnar og það er alls ekki gott, sérstaklega ef að maður er í þunnum buxum :S

svo er ég að fara í hina árlega Lundaveislu 12. ágúst. Lúxus að vera hálfur vestmannaeyjungur, þarf ekki að eyða morðfjár fyrir ferð til eyja heldur fer ég bara heim til múttu og pabba og fæ lunda. Reyktur lundi með miklu smjöri, namminamm :D

ofsalega gott :haha:

skólinn byrjar 1. september.... ég hlakka eiginlega bara pínu til að byrja í skólanum, don´t ask me why 8|

ætla að vera ofsalega dugleg að læra í haust, ekki frumlesa allt efnið rétt fyrir próf eins og ég gerði núna síðast, hrikalega slæmur ávani :evil:

 

en núna held ég að þetta sé nóg í bili.....

 

p.s. endilega kommentið um hvort að helgin 15 - 17 september sé ekki bara góð fyrir þetta sleepover hjá okkur :haha:


» 12 hafa sagt sína skoðun

27.07.2006 12:05:00 / Ásdís

Til hamingju með afmælið ;)

Hún á afmæli í dag, hún á afmæli í dag,

hún á afmæli hún Hildur

Hún á afmæli í dag ..

Hún er 21 árs í dag ... Hún er 21 árs í dag ...

Hún er 21 árs hún Hildur , hún er 21 árs í dag ...

 

 

 



Til hamingju með daginn elsku Hildur Sæta .. :haha:

 

 



Love Dynamite .. ;)

 




» 10 hafa sagt sína skoðun

26.07.2006 11:12:59 / Ásdís

Fyndið...

Þú veist að það er 2006 ef..... 

1. Þú ferð í Party og byrjar að taka myndir fyrir bloggið þitt.

2. Þú hefur ekki spilað kapal með alvöru spilastokk í nokkur ár.

3. Ástæðan fyrir því að þú ert ekki í sambandi við suma vini þína er að
því
þeir eru ekki að blogga, ekki á MySpace og eða á MinnSirkus .

4. Þú leitar frekar um alla íbúð af fjarstýringunni í stað þess að ýta
bara
á takkann á sjónvarpinu.

6. Kvöldstundir þínar snúast um að setjast niður fyrir framan tölvuna.

7. Þú lest þennan lista kinkandi kolli og brosandi.

8. Þú hugsar um hvað það er mikil vitleysa að lesa þennan lista.

9. Þú ert of upptekin/nn að taka eftir númer fimm.

10. Þú virkilega skrollaðir  tilbaka til að athuga hvort þar væri númer
fimm.

11. Svo hlærðu af heimsku þinni.

12. Sendu þetta á vini þina, settu þetta á bloggið þitt eða komdu þessu á framfæri  einhverstaðar EF þú félst fyrir þessu..


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.07.2006 20:26:28 / Sonja

Saumó

 

HVAÐ:       SAUMAKLÚBBUR

 

HVENÆR: MIÐVIKUDAGINN 26. JÚLÍ. KL19

 

HVAR:       HEIMA HJÁ SONJU, Í RVK

 

ANNAÐ: Allir að koma með eitthvað smotterýJ Ég kem að sjálfsögðu með drykkinaJ

 

Hlakka til að sjá ykkur J

 

P.s. Endilega kvittið ef þið ætlið að komaJ svona svo ég viti cirkaJ

 

Og já by the way, DR. Phil biður að heilsa Íslandi, he he  hann millilenti á

einkavélinni sinni í dag, en bara stutt fuel stopp, en ég sá hann þóJ

 

 

    

        

 


» 21 hafa sagt sína skoðun

16.07.2006 01:06:16 / Ella

stuð

Ég var að hugsa hvað margar vinkonur mínar hafa komið í heimsókn í "nýju" íbúðina mína síðan ég flutti inn, fyrir ca. 3 mán síðan.. Það tók of stuttan tíma.

Nenniði að koma í heimsókn..

 ---- góða nótt


» 33 hafa sagt sína skoðun

14.07.2006 18:28:16 / Jona

áfram ísland

elsku stelpur, nú er svo sannalega kominn

 tími til að við förum í ferðalag allar

saman.

 

eruð þið ekki sammála?

 

ég legg til að við fjölmennum í eina góða

 og hamingjusama útilegu næstu helgi.

 

eruð þið til?

 

vona að við getum farið sem flest og

slakað á og notið yndislegrar náttúru og

 samveru hvers annars.

hvernig líst ykkur á það?


» 5 hafa sagt sína skoðun

14.07.2006 16:46:32 / Anika

vvúúhhhúúúúú

Girls.... Ég var að kaupa mér plasma tv 42tommu og heimabíó... GEGGJAÐ!!!!!! adios... Anika

» 2 hafa sagt sína skoðun

11.07.2006 21:31:12 / Sonja

Helló :)

Hæ hæ var að ljúka samtali mínu við hana elskulegu vinkonu okkar Völu:) Hún hringdi frá Mósambík í Afríku og hljóðið í henni var mjög gott:) Hún bað kærlega vel að heilsa öllum:)  Fyrir þá sem ekki vita þá er hún búin að vera í Afríku í heilt ár og kemur bráðum heim. Hún er búin að vera að kenna innfæddum ensku og fleirra:) Afríkubúar eru ekkert smá heppnir að hafa fengið hana Völu til sín því hún er jú topp manneskja:) Love you:* Vala talar orðið portúgölsku eins og innfædd:) hehe snilld:)

En ég hlakka svo til að fá hana heim:)

En annars er allt gott að frétta af mér:) Geri fátt annað en að vinna, sofa ,fljúga og borða:) þessa dagana:)

En ekki meira í bili:)

later

kv Sonja


» 11 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 25
Dagsetning
9. febrúar 2012
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 19 mars
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 19 mars
Klukkan